Aubameyang til Deportivo

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Pierre-Emerick Aubameyang er á leið til Deportivo La Coruna á Spáni. Footmercato í Frakklandi sagði fyrst og frá og aðrir fjölmiðlar hafa fylgt á eftir.
Samkomulag er í höfn og stutt er í að hann fari í læknisskoðun. Hann fer til Deportivo frá Marseille sem fær um 1,5 milljón evra fyrir framherjann.
Aubameyang er 37 ára framherji frá Gabon sem hefur verið á mála hjá AC Milan, Dortmund, Arsenal, Chelsea, Barcelona og Marseille á sínum ferli.

Deportivo komst upp í La Liga í vetur og verður í spænsku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn síðan tímabilið 2017-18.
Aubameyang hefur á sínum félagsliðaferli skorað 369 mörk í 735 leikjum. Fjórtán af þeim komu í 41 leik á liðnu tímabili. Hann á að baki 86 landsleiki og hefur í þeim skorað 40 mörk.