Fotbolti.net
15.07.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Balogun tjáir sig um ákvörðunina umdeildu: Erfitt að einbeita sér

Folarin Balogun var tekinn af velli gegn Belgíu.

Folarin Balogun var tekinn af velli gegn Belgíu.

Canon

Mynd: EPA

Sú umdeilda ákvörðun að aflétta leikbanni Folarin Balogun, sóknarmanns Bandaríkjanna, hafði truflandi áhrif á hann í aðdraganda leiksins gegn Belgíu.

Balogun fékk beint rautt spjald í 2-0 sigri gegn Bosníu og Hersegóvínu í 16-liða úrslitum og hefði átt að taka út leikbann gegn Belgíu en banninu var aflétt.

Þegar það voru innan við tveir sólarhringar í leikinn tilkynnti FIFA að Balogun þyrfti ekki að taka út leikbann. Ákvörðunin var gríðarlega umdeild og hlaut meðal annars harða gagnrýni UEFA. Donald Tump forseti Bandaríkjanna viðurkenndi að hafa tekið upp símann og hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, áður en banninu var aflétt.
Einn af átján í nefndinni tók ákvörðunina um að aflétta banni Balogun
TENGT EFNI

Einn af átján í nefndinni tók ákvörðunina um að aflétta banni Balogun

„Ég var ánægður með að geta verið með liðsfélögum mínum í leiknum en vissi að þetta yrði mjög umdeilt. Ég skynjaði smá taugatitring hjá liðsfélögum mínum því þetta var fordæmalaust. En því nær sem dró leiknum reyndi ég að einbeita mér eins og hægt var," segir Balogun við CBS.

Balogun segir að það hafi verið áfall þegar hann fékk rauða spjaldið og að hann hafi verið ósammála ákvörðuninni.

„Eftir að leikbannið var fellt niður var erfitt að einbeita sér því umræðan var svo rosalega mikil og utanaðkomandi áreiti. En þegar í leikinn kom vorum við með fulla einbeitingu á leiknum. Þetta var erfiður leikur gegn Belgíu."
Balogun tjáir sig um ákvörðunina umdeildu: Erfitt að einbeita sér
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.