Fotbolti.net
15.07.26 - 21:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tuchel: Sé ekki eftir neinu

Tuchel: Sé ekki eftir neinu
Canon

Mynd: EPA

England tapaði gegn Argentínu í undanúrslitum á HM í kvöld eftir dramatískar lokamínútur.

Thomas Tuchel hefur fengið mikla gagnrýni eftir leikinn. Anthony Gordon kom Englandi yfir snemma í seinni hálfleik. Tuchel gerði þrjár skiptingar og liðið var orðið mjög varnarsinnað í lokin.
Arnar tók sér tveggja mínútna hlé sem landsliðsþjálfari til að gagnrýna England
TENGT EFNI

Arnar tók sér tveggja mínútna hlé sem landsliðsþjálfari til að gagnrýna England

Enzo Fernandez jafnaði metin fyrir Argentínu þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma og Lautaro Martinez innsiglaði sigurinn með marki í uppbótatíma.

Tuchel segist ekki sjá eftir neinu.

„Eins og er sé ég ekki eftir neinu. Liðið gaf allt í þetta og við vorum mjög nálægt þessu. Við áttum skilið að komast yfir. Við spiluðum einn af okkar bestu leikjum, kannski þann besta miðað við aðstæður. Liðið var frábært, við náðum ekki að koma þessu yfir línuna," sagði Tuchel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.