Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   lau 15. ágúst 2015 18:28
Alexander Freyr Tamimi
Patrick Pedersen: Gat ekki misst af þessu
Patrick í baráttunni við Skúla Jón í leiknum.
Patrick í baráttunni við Skúla Jón í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Patrick Pedersen, framherji Vals og markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar, var mættur til leiks í bikarúrslitum þar sem Valur vann 2-0 sigur gegn KR og hampaði bikarnum.

Daninn var afar tæpur fyrir leikinn en var tjaslað saman í tæka tíð. Fannst honum klárlega þess virði að spila leikinn.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  0 KR

„Ég var mjög ánægður, ég gat ekki misst af þessum leik, þetta er stærsti leikur tímabilsins. Það var mikilvægt að vinna og ég er mjög ánægður núna," sagði Patrick eftir leikinn.

„Mér leið vel en ekki í lokin, ég fann ekki fyrir fætinum. Ég fékk sprautu fyrir leikinn fyrir leik, en já við klúðruðum held ég fjórum dauðafærum en við skoruðum loksins. Ef þú skoðar færin, þá held ég að við áttum skilið að vinna."
Athugasemdir
banner