Fotbolti.net
15.08.18 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Clara vekur áhuga í Frakklandi

Clara í leik með ÍBV.

Clara í leik með ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Clara Sigurðardóttir, miðjumaður ÍBV, hefur vakið áhuga hjá félögum í Frakklandi.
Clara vakti athygli með U17 ára landsliði Íslands á Norðurlandamótinu í sumar. Ísland náði 3.sæti þar eftir að hafa sigrað lið eins og Þýskaland og England.

Í kjölfarið hafa borist fyrirspurnir frá Frakklandi um Clöru en þetta kemur fram á vef ÍBV.

„Clara mun klára Íslandsmótið með ÍBV og skoða sín mál í framhaldi af því,\" segir á heimasíðu ÍBV.

Clara er fædd árið 2002 en þrátt fyrir ungan aldur hefur hún skorað þrjú mörk í 28 leikjum í Pepsi-deildinni á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.