Fotbolti.net
15.08.22 - 09:10
Ívan Guðjón Baldursson

Tuchel: Engum nema dómaranum að kenna

Tuchel: Engum nema dómaranum að kenna
Canon

Mynd: Getty Images

Thomas Tuchel var ekki feiminn við að svara spurningum fréttamanna Sky Sports og BBC eftir 2-2 jafntefli Chelsea gegn Tottenham í gær.

Tuchel telur að sínir menn í Chelsea hafi átt skilið að vinna leikinn enda sýndu þeir mikla yfirburði í leiknum. Hann kennir Anthony Taylor dómara um jafnteflið og telur svona dómaramistök vera einstaklega svekkjandi á tímum VAR.

„Ég er vonsvikinn því við áttum skilið að vinna en við gerðum það ekki útaf tveimur ólöglegum mörkum. Þetta eru mörk sem áttu ekki að standa og það er mjög erfitt að samþykkja svona dómgæslu þegar við erum með VAR herbergi," sagði Tuchel við BBC að leikslokum.

„Þetta hefði verið verðskuldaður og mikilvægur sigur fyrir okkur. Leikmennirnir áttu skilið að vera verðlaunaðir með sigri, þeir voru frábærir á öllum sviðum bæði með og án boltans. Ég er ótrúlega ánægður með frammistöðuna og mér finnst leiðinlegt að segja þetta en dómarinn eyðilagði leikinn - enginn annar.

„Strákarnir eru auðvitað svekktir en ég held að þeir hafi samt áttað sig á því hversu vel við spiluðum í dag."

Bæði Chelsea og Tottenham eru með fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðir tímabilsins. Chelsea þurfti vítaspyrnu til að sigra gegn Everton í fyrstu umferð á meðan Tottenham skoraði fjögur gegn Southampton.

Tuchel: Engum nema dómaranum að kenna
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.