Nik svekktur: Þetta hefur verið saga tímabilsins


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var bara nákvæmnlega eins og leikurinn á móti ÍBV fyrir utan það að við töpuðum í dag. Við byrjuðum leikinn vel og fengum fín færi. Síðan slökktum við á okkur í andartak þegar þær fá innkast og ná að skora. Mér fannst við koma vel til baka og við sköpuðum okkur fín færi. Þetta er saga tímabilsins.“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar eftir 2-0 tap á móti Tindastól í kvöld. Þetta er þriðji leikurinn í röð þar sem Þróttur mistekst að vinna.
Þú nefnir þessi fínu færi sem þið fenguð en það var markmaðurinn í dag og á móti ÍBV sem sáu eiginlega bara til þess að þið mynduð ekki vinna í dag, hversu pirrandi er það?
„Mjög. Ég bara veit ekki hvað ég hef gert markmönnum í þessari deild. Það jákvæða er samt að við erum að skapa færi og að standa okkur vel í staðinn fyrir að spila illa og tapa 2-0.“
Hvernig fannst þér frammistaðan í heildina?
„Þetta var ekki okkar besti leikur. Við sentum mjög margar tilgangslausar sendingar í dag því leikmennirnir voru orðnir óþolinmóðir.“
Er þetta ástæðan afhverju þið sóttuð Elínu Mettu í dag, til þess að klára færin?
„Já. Við vorum búin að tala saman seinustu daga og hún var búin að mæta á æfingar hjá okkur. Hún naut þess. Hún vill komast aftur í fótboltann. Hún er gæðaleikmaður og hún sýndi það á æfingum að hún getur skorað mörk, vonandi getur hún líka gert það í leikjum fyrir okkur.“
Veistu afhverju hún ákvað að taka skóna af hillunni og koma til Þróttar á miðju tímabili?
„Hún vildi koma til baka í fótboltann og henni langar að njóta þess að getað spilað fótbolta. Hún heldur að við getum gefið henni það tækifæri og það verður spennandi fyrir mig að vinna með leikmanni á hennar kaliberi.“
Hvað mun hún gefa ykkur þar sem eftir er af tímabilinu?
„Ekki bara mörk. Hún mun koma með þetta sigurhugarfar. Hún hefur unnið allt á Íslandi og hefur spilað í landsliðinu. Það eru nokkrar stelpur í liðinu okkar sem þurfa að fá þetta sigurhugarfar, hugarfarið í það að vinna titla.“
Næsti leikur gegn Keflavík á útivelli, hvernig leggst sá leikur í þig og er ekki sérstaklega erfitt að undirbúa sig fyrir leik eftir að hafa ekki unnið í þremur leikjum í röð?
„Jú en við höfum gert það áður í sumar. Það verður erfitt að keppa á móti Keflavík, þær eru auðvitað að berjast fyrir lífinu sínu líka. En við þurfum bara að spila eins og við gerðum í dag og einn daginn munu mörkin detta.“ sagði Nik Chamberlain að lokum eftir 2-0 tap á móti Tindastól á heimavelli.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.



