Fotbolti.net
15.09.16 - 19:39
Elvar Geir Magnússon

Gregg Ryder: Á ekki skýringar á hrikalegri frammistöðu

Auglýsing
Gregg á hliðarlínunni í kvöld.

Gregg á hliðarlínunni í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur sá ekki til sólar gegn Fjölni í kvöld og getur liðið þakkað fyrir að hafa sloppið með 2-0 tap úr leiknum. Fjölnir óð í færum og staða Þróttar er kolsvört á botni deildarinnar.
„Þetta var hrikalegt. Frammistaðan var virkilega slæm. Við vorum hrikalegir með boltann og ég á enga skýringu. Við áttum í mestu vandræðum með einfaldar sendingar,\" segir Gregg Ryder, þjálfari Þróttar.

„Það er ekki hægt að hugsa sér hvernig við fórum úr svona góðri frammistöðu (í sigrinum gegn ÍA í síðustu umferð) í svona slæma.\"

Aron Þórður Albertsson, leikmaður Þróttar, fékk rauða spjaldið í lok fyrri hálfleiks.

„Maður hefur séð gult spjald fyrir svona brot, það var enginn ásetningur. En ég verð að sjá atvikið aftur.\"

Jákvæði punkturinn hjá Þrótti í kvöld var frammistaða markvarðarins Arnars Darra Péturssonar sem var í yfirvinnu og skilaði henni vel.

„Arnar Darri var magnaður. Hann hefur sýnt mikinn stöðugleika,\" segir Gregg sem telur að ef Þróttur vinnur þá leiki sem liðið eigi eftir muni liðið halda sér.

„Ég tel það. Ef við spilum eins og gegn ÍA getum við náð því. Ekki ef við spilum eins og við gerðum í dag,\" segir Gregg en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.