Fotbolti.net
15.09.26 - 18:24
Kári Snorrason
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Fram og Breiðabliks: Höskuldur á bekknum - Ægir Jarl í banni

Fyrirliði Blika á bekknum.

Fyrirliði Blika á bekknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram tekur á móti nýkrýndum bikarmeisturum Breiðabliks á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal síðar í kvöld.

Flautað verður til leiks klukkan 19:15 og búið er að opinbera byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: Fram 0 - 0 Breiðablik
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, er tilneyddur til að gera eina breytingu á byrjunarliði sínu frá 2-2 jafntefli Fram gegn Víkingi í síðustu umferð.

Ægir Jarl Jónasson fékk að líta rauða spjaldið gegn Víkingi og er hann því ekki í leikmannahóp Fram í dag. Inn í hans stað kemur Már Ægisson.

Fred Saravia er áfram á bekknum en hefur verið að glíma við meiðsli og var ónotaður varamaður gegn Víkingi.

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudag.

Þeir Ívar Örn, Kristinn Jónsson, Jónatan Guðni og Gabríel Snær koma allir inn í liðið.

Úr byrjunarliðinu víkja fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson, Aron Bjarnason, Kristófer Ingi og Viktor Örn.

Byrjunarlið Fram

  • 22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
  • 3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
  • 5. Kyle Douglas Mc Lagan
  • 8. Haraldur Einar Ásgrímsson
  • 9. Róbert Hauksson
  • 12. Simon Tibbling
  • 19. Kennie Knak Chopart (f)
  • 23. Már Ægisson
  • 25. Freyr Sigurðsson
  • 26. Sigurjón Rúnarsson
  • 29. Vuk Oskar Dimitrijevic

Byrjunarlið Breiðablik

  • 1. Anton Ari Einarsson (m)
  • 4. Ásgeir Helgi Orrason
  • 5. Ívar Örn Árnason
  • 9. Óli Valur Ómarsson
  • 13. Anton Logi Lúðvíksson (f)
  • 14. Hlynur Freyr Karlsson
  • 18. Davíð Ingvarsson
  • 19. Kristinn Jónsson
  • 22. Jónatan Guðni Arnarsson
  • 29. Gabríel Snær Hallsson
  • 99. Þorleifur Úlfarsson
Már Ægisson kemur inn í lið Framara.

Már Ægisson kemur inn í lið Framara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir Jarl tekur út leikbann.

Ægir Jarl tekur út leikbann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gerir fjórar breytingar frá úrslitaleiknum.

Gerir fjórar breytingar frá úrslitaleiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.23+4956
2KR23+2947
3Fram22+1445
4Breiðablik22+230
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.