Fotbolti.net
15.09.26 - 16:58
Kári Snorrason

Fylltist stolti er sonurinn sýndi stuðningsmönnum United fingurinn

Stoltur faðir.

Stoltur faðir.

Canon

Mynd: EPA

Noel Gallagher, meðlimur Oasis og annálaður stuðningsmaður Manchester City, segist hafa fyllst stolti þegar fimmtán ára sonur hans sýndi stuðningsmönnum Manchester United fingurinn í Manchester-slagnum um helgina.

Sonny Gallagher fagnaði í stúkunni ásamt bróður sínum Donovan og föður þeirra eftir að Erling Haaland skoraði umdeilt mark um miðbik síðari hálfleiks, sem reyndist vera sigurmark leiksins.
Í samtali við talkSPORT var Noel spurður út í látbragð sonarins og sagði hann það vera til marks um gott uppeldi.

Þess má geta að Oasis tilkynnti í gær að bandið væri að fara í tónleikarferðalag víða um heim á næsta ári. Bandið kom aftur saman fyrir tveimur árum eftir áralöng ósætti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.