Fotbolti.net
15.09.26 - 18:38
Brynjar Ingi Erluson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Gatorade bikar Fótbolta.net: Selfoss skoraði fimm og komst í úrslit í annað sinn

Selfoss leikur til úrslita í annað sinn

Selfoss leikur til úrslita í annað sinn

Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Selfoss 5 - 0 Álftanes
1-0 Guðmundur Stefánsson ('9 )
2-0 Guðmundur Stefánsson ('52 )
3-0 Viðar Örn Kjartansson ('68 )
4-0 Aron Fannar Birgisson ('70 )
5-0 Gestur Helgi Snorrason ('90 )
Rautt spjald: Hilmir Ingi Jóhannesson, Álftanes ('26) Lestu um leikinn
Það ríkir mikil gleði á Selfossi þessa dagana. Liðið tryggði sér sæti í Lengjudeildinni um helgina og fylgdi því eftir með því að komast í úrslit Gatoradebikars Fótbolta.net eftir 5-0 stórsigur á Álftanesi á JÁVERK-vellinum í kvöld.

Selfoss vann bikarinn árið 2024 og er nú komið í úrslit keppninnar í annað sinn.

Guðmundur Stefánsson kom Selfyssingum yfir á 9. mínútu eftir frábæra fyrirgjöf Ívans Breka Sigurðssonar. Boltinn rataði beint á kollinn á Guðmundi sem skallaði hann yfir Tómas í markinu.

Róðurinn þyngdist verulega fyrir Álftanes á 26. mínútu þegar Hilmir Ingi Jóhannesson fékk að líta rauða spjaldið fyrir að taka Elías Karl Heiðarsson niður þegar hann var við það að sleppa í gegn.

Selfyssingar gengu síðan frá leiknum í síðari hálfleik. Guðmundur skoraði sitt annað mark á 52. mínútu, aftur með skalla, áður en Viðar Örn Kjartansson, markahæsti maður 2. deildar, bætti við þriðja markinu úr aukaspyrnu.

Aron Fannar Birgisson skoraði fjórða markið aðeins tveimur mínútum síðar áður en Gestur Helgi Snorrason kláraði dæmið með laglegu marki undir lokin.

Selfyssingar mæta annað hvort Kormáki/Hvöt eða Haukum í úrslitum. Staðan í þeim leik er 1-1 og framlenging í gangi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.