Fotbolti.net
15.09.26 - 18:46
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalski bikarinn: Mikael hafði betur gegn Bjarka - Mæta meisturunum næst

Ítalski bikarinn: Mikael hafði betur gegn Bjarka - Mæta meisturunum næst
Canon

Mynd: EPA

Genoa 1 - 0 Sudtirol
1-0 Johan Vasquez ('87 )
Mikael Egill Ellertsson hafði betur gegn Bjarka Steini Bjarkasyni þegar Genoa marði 1-0 sigur á Sudtirol í 32-liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld.

Þeir tveir voru áður liðsfélagar hjá Venezia og eru jafnframt samherjar í íslenska landsliðinu.

Mikael sat allan leikinn á bekknum hjá Genoa en Bjarki Steinn kom inn á fyrir Sudtirol þegar átta mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Sigurmarkið kom fimm mínútum síðar þegar mexíkóski miðjumaðurinn Johan Vasquez skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu David Puczka.

Genoa mætir Ítalíu- og bikarmeisturum Inter í 16-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.