Fotbolti.net
15.09.26 - 17:40
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool í viðræðum við Ngumoha

Liverpool í viðræðum við Ngumoha
Canon

Mynd: EPA

Liverpool er í viðræðum við enska ungstirnið Rio Ngumoha um nýjan samning.
Ngumoha, sem fagnaði 18 ára afmæli sínu í síðasta mánuði, er talinn einn efnilegasti vængmaður Englands.

Liverpool fékk hann frá Chelsea árið 2024. Hann fékk mínútur undir Arne Slot á síðustu leiktíð og sýndi góðar rispur og er von á því að hann fái enn stærra hlutverk á þessu tímabili.

Fabrizio Romano segir Liverpool þegar hafið viðræður við Ngumoha og umboðsmenn hans um samning en núgildandi samningur hans rennur út eftir tvö ár.

Ngumoha leikur með yngri landsliðum Englands og fékk þá að æfa og spila með A-landsliðinu fyrir HM í sumar þar sem hann stóð sig vel, en var ekki upprunalega 55-leikmanna úrtakshópnum og gat því Thomas Tuchel ekki valið hann í hópinn fyrir sjálft mótið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.