Fotbolti.net
15.09.26 - 18:26
Brynjar Ingi Erluson

Rúnar Alex hélt hreinu og Viktor Bjarki þurfti aðeins sex mínútur til að skora

Viktor Bjarki skoraði þriðja mark FCK sex mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður

Viktor Bjarki skoraði þriðja mark FCK sex mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður

Canon

Mynd: EPA

Danska stórliðið FCK er komið áfram í 16-liða úrslit danska bikarsins eftir að hafa fagnað öruggum 3-0 sigri á Skovshoved í kvöld.
Allir þrír Íslendingarnir fengu að spreyta sig en Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli stanganna og hélt hreinu.

Viktor Bjarki og Gunnar Orri Olsen byrjuðu á bekknum en Viktor kom inn á á 62. mínútu og skoraði þriðja mark FCK aðeins sex mínútum síðar.

Gunnar kom síðan inn á þegar stundarfjórðungur var eftir og lék þar með sinn annan keppnisleik fyrir aðalliðið.

Þægilegt kvöld hjá Íslendingunum í FCK sem eru nú komnir áfram í næstu umferð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.