Fotbolti.net
15.09.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Stjóri Villarreal lítur í eigin barm - „Ég er ekki að standa mig“

Inigo Perez tók við Villarreal í sumar.

Inigo Perez tók við Villarreal í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Villarreal á Spáni er aðeins með tvö stig eftir fimm fyrstu leiki sína í La Liga. Liðið tapaði 1-2 á heimavelli gegn Real Betis í gær.

Gerard Moreno kom Villarreal yfir en Real Betis tryggði sér sigur með mörkum Cucho Hernandez og Natan. Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik.

Stjóratíð Inigo Perez, sem tók við liðinu í sumar, fer hræðilega af stað en auk slæmra úrslita í spænsku deildinni tapaði liðið fyrir Borussia Dortmund í Meistaradeildinni. Villarreal hafnaði í þriðja sæti La Liga á síðasta tímabili en er í fallsæti eftir bratta byrjun núna.
Perez, sem var áður hjá Rayo Vallecano, var sjálfsgagnrýninn í viðtölum eftir tapið í gær.

„Við byrjuðum vel en eftir að við lentum undir var þetta slakur leikur. Ég er svekktur. Maður gerir þá kröfu á sjálfan sig að finna lausnir fyrir liðið en ég fann þær ekki í dag. Ég verð að líta í eigin barm," segir Perez.

„Ef ég væri með skýringar þá myndi ég laga hlutina. Ég er ekki að finna lausnir og er ekki að standa mig. Við þurfum að líta alvarlega á stöðuna því við erum ekki að standa okkur."


Stjóri Villarreal lítur í eigin barm - „Ég er ekki að standa mig“
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona5+1715
2Real Madrid5+1012
3Betis5+112
4Alaves5+610
5Atletico Madrid5+410
6Sevilla5+210
7Deportivo5+39
8Espanyol5+37
9Athletic5+17
10Racing Santander507
11Osasuna5-37
12Real Sociedad6-57
13Levante5-25
14Getafe5-35
15Celta6-34
16Vallecano5-64
17Malaga5-63
18Villarreal5-32
19Elche5-72
20Valencia5-91
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.