Fotbolti.net
15.10.18 - 21:55
Arnar Helgi Magnússon

Hannes: Sáum tækifæri í því að vinna þennan leik

Auglýsing
Hannes eftir leikinn í kvöld.

Hannes eftir leikinn í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Hannes Þór Halldórsson markvörðu Íslands var svekktur eftir tap gegn Sviss í Þjóðadeildinni. Eftir þetta tap er íslenska liðið fallið úr A-deild Þjóðadeildarinnar.
„Það var bara ógeðslega svekkjandi að tapa þessu. Við sáum tækifæri í að vinna þá. Það hefði verið mjög mikilvægt og við hefðum farið langt með það að tryggja okkur í efsta styrkleikaflokk fyrir undankeppni EM 2020."

„Við getum sjálfum okkur um kennt. Við spiluðum allt í lagi í fyrri hálfleik, illa fyrsta hálftímann í seinni hálfleik og síðan sýndum við hvað í okkur býr síðustu 10 mínúturnar."

Hannes var spurður af því hver munurinn hafi verið á þessu landsleikjahléi og svo því síðasta.

„Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið eðlilegt landsleikjahlé og síðasta óeðlilegt. Við höfum fundið taktinn, auðvitað töpum við í dag en við erum ekki vanir því hérna á heimavelli. Það hefur ekkert þannig lagað breyst en þetta var "wake up call" þarna um daginn."

Íslenska liðið var nálægt því að jafna leikinn undir lok leiksins.

„Það var svekkjandi að ná ekki inn marki. Við lágum á þeim. Vanalega skorum við fleiri en eitt og fáum á okkur færri en tvö hérna á heimavelli. Við verðum að horfa í frammistöðuna frekar en úrslitin."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.