Trump mætir á úrslitaleikinn og tekur þátt í verðlaunaafhendingunni

Trump tók þátt í verðlaunaafhendingunni á HM félagsliða í fyrra.

Mynd: EPA

Donald og Gianni.

Búist er við því að Donald Trump forseti Bandaríkjanna verði meðal áhorfenda á úrslitaleik HM næsta sunnudag.
Trump hefur látið til sín taka á HM en hann og Gianni Infantino, forseti FIFA, eru nánir vinir.
Trump hefur þó enn ekki mætt á neinn leik á mótinu. Það er hinsvegar búist við því að hann mæti á úrslitaleikinn og samkvæmt upplýsingum frá FIFA er honum ætlað að taka þátt í verðlaunaafhendingunni.

TENGT EFNI
Hálfleikurinn í úrslitaleiknum gæti orðið 25 mínútur - Bandaríski þjóðsöngurinn fyrir leik
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, mun líka mæta en hann og Trump eru heldur betur ósammála í mörgum málum. Mamdani var spurður að því á fréttamannafundi hvort hann muni tala við eða sitja hjá Trump á leiknum.
„Einbeiting mín verður á leiknum. Ég bý mig undir að horfa á 90 mínútur eða jafnvel 120 mínútur og vítakeppni líka," svaraði Mamdani en hann er gríðarlegur fótboltaáhugamaður og styður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Úrslitaleikurinn verður á MetLife leikvangnum í New Jersey klukkan 19 á sunnudag og þar mun Spánn mæta Englandi eða Argentínu.