Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. október 2020 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Balotelli ætlar að skrifa undir eftir nokkrar vikur
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Mario Balotelli hefur greint frá því að hann muni skrifa undir hjá nýju félagi eftir nokkrar vikur.

Balotelli er fáanlegur á frjálsri sölu eftir aðeins eitt tímabil hjá Brescia. Hann lenti í deilum við æðstu menn félagsins og var samningi hans rift.

Balotelli skoraði fimm mörk í nítján leikjum fyrir Brescia í ítölslu A-deildinni á síðustu leiktíð, en félagið féll úr deild þeirra bestu.

Þessi þrítugi sóknarmaður hefur verið orðaður við ýmislegt, en hann hefur ekki skrifað undir neins staðar til þessa.

„Ég mun skrifa undir eftir nokkrar vikur, ekki hafa áhyggjur," sagði Balotelli.

Balotelli hefur í gegnum tíðina verið þekktur fyrir að vera mikill vandræðagemsi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner