fim 15. október 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool hafnar tilboði Swansea í Harry Wilson
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur hafnað tilboði Swanea um að fá kantmanninn Harry Wilson á láni.

Félagaskiptaglugginn í Championship deildinni lokar annað kvöld og Liverpool er að skoða að lána Wilson þangað.

Ensku meistararnir voru hins vegar ekki ánægðir með upphæðina sem Swansea var tilbúið að borga fyrir lánið.

Wilson var á láni hjá Bournemouth á síðasta tímabili og hjá Derby tímabilið þar á undan.

Derby, Nottingham Forest og Cardiff vilja einnig fá hann á láni auk Swansea og líklegt er að hann fari á lán fyrir gluggalok.
Athugasemdir
banner
banner