Fotbolti.net
15.11.20 - 17:37
Elvar Geir Magnússon

Aron Einar og Gylfi verða ekki með gegn Englandi

Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson.

Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Klukkan 19:45 í kvöld mætast Danmörk og Ísland í Þjóðadeildinni en að þeim leik loknum halda strákarnir okkar til Englands og leika þar gegn heimamönnum á miðvikudaginn á Wembley.

Ljóst er að íslenski hópurinn mun taka miklum breytingum fyrir þann leik en fimm leikmenn úr U21 hópnum koma þá inn.
KSÍ hefur ekki gefið út hvaða leikmenn fara úr hópnum en það ætti að skýrast eftir leikinn í kvöld.

Samkvæmt 433.is verða Gylfi Þór Sigurðsson og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson meðal leikmanna sem ekki taka þátt í leiknum á Wembley.

Heimild: 433.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.