Karlaflokkar allra helstu félagsliða Evrópu eru í pásu um þessar mundir vegna landsleikjahlés en það eru kvennaflokkarnir ekki.
Leikir fóru fram í helstu deildum Evrópu í vikunni og um helgina og voru gerð tvö sérstaklega falleg mörk, eitt á Spáni og eitt á Englandi.
Í spænska boltanum gerði Florencia Bonsegundo frábært mark með laglegri vippu eftir magnað einstaklingsframtak. Hún skoraði eina mark Valencia í 2-1 tapi gegn Real Betis.
Á Englandi var það Tobin Heath sem gerði glæsilegt mark fyrir Manchester United í grannaslagnum gegn Manchester City. Man City var 0-2 yfir þegar Heath vann boltann í vítateignum og lét vaða með óverjandi þrumuskoti í nærhornið. Markið reyndist afar mikilvægt því Man Utd náði að jafna og urðu lokatölur 2-2.
Mörkin má sjá hér fyrir neðan.
[Women] Valencia's Florencia Bonsegundo great chip goal against Real Betis on Wednesday from r/soccer
[Women] Manchester United [1] - 2 Manchester City - Tobin Heath 54' (Great goal) from r/soccer
Athugasemdir