mán 15. nóvember 2021 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andy Carroll gerir stuttan samning við Reading (Staðfest)
Andy Carroll.
Andy Carroll.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Andy Carroll er búinn að skrifa undir stuttan samning við Reading.

Carroll hefur verið félagslaus síðustu mánuði. Hann yfirgaf Newcastle í annað sinn á ferlinum síðasta sumar.

Hinn 32 ára gamli Carroll hefur skrifað undir samning við Reading sem gildir þangað til um miðjan janúar.

„Andy var að leitast eftir nýrri áskorun og við vorum að leita að leikmanni með hans gæði og hans reynslu. Ég hlakka til að vinna með Andy næstu mánuðina," segir Veljko Paunovic, stjóri Reading.

Það hafa meiðsli verið að herja á sóknarmenn Reading og mun Carroll koma inn og hjálpa til.

Carroll getur svo samið við annað félag eða samið við Reading áfram í janúar.

Reading situr í 16. sæti Championship-deildarinnar, næst efstu deildar Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner