15.11.26 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Slátruðu Haítí í næstsíðasta leik Pochettino

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bandaríkin mættu til leiks í gærkvöldi í næstsíðasta leik Mauricio Pochettino við stjórnvölinn.

TENGT EFNI
Pochettino tekinn við Man Utd (Staðfest)
Bandaríkin heimsóttu Haítí í 8-liða úrslitum Þjóðadeildarinnar og leiddu lærlingar Pochettino með einu marki í leikhlé, eftir að Auston Trusty skoraði á tíundu mínútu.
Flóðgáttirnar opnuðust í síðari hálfleik og skoruðu Bandaríkjamenn fimm mörk í viðbót, svo lokatölur urðu 0-6. Christian Pulisic setti tvö og komust Weston McKennie og Folarin Balogun einnig á blað ásamt hinum 18 ára gamla Julian Hall.
Bandaríkin taka á móti Haítí á miðvikudaginn í lokaleik Pochettino við stjórnvölinn áður en hann flytur aftur til Englands til að taka við Manchester United.
Í öðrum leikjum Þjóðadeildarinnar vann Kanada fyrri leikinn sinn gegn Gvatemala með eins marks mun á meðan Jamaíka lagði Mexíkó óvænt að velli. Jamaíka komst í þriggja marka forystu á heimavelli en lokatölur urðu 3-2. Panama og Curacao gerðu þá markalaust jafntefli sín á milli.
Það ríkir mikil spenna fyrir seinni leikina í 8-liða úrslitunum, nema þann í Bandaríkjunum þar sem heimamenn eru þegar öruggir áfram eftir sex marka sigur.
Haítí 0 - 6 Bandaríkin
0-1 Auston Trusty ('10)
0-2 Julian Hall ('52)
0-3 Christian Pulisic ('62, víti)
0-4 Christian Pulisic ('63)
0-5 Weston McKennie ('68)
0-6 Folarin Balogun ('82)
Jamaíka 3 - 2 Mexíkó
1-0 Jesus Gallardo ('27, sjálfsmark)
2-0 Renaldo Cephas ('46)
3-0 Richard King ('63, víti)
3-1 Gilberto Mora ('70)
3-2 Julian Quinones ('81, víti)
Gvatemala 2 - 3 Kanada
0-1 Tanitoluwa Oluwaseyi ('18)
0-2 Liam Millar ('28)
0-3 Jonathan David ('45+2)
1-3 Oscar Santis ('54)
2-3 Luc De Fougerolles ('94, sjálfsmark)
Curacao 0 - 0 Panama