Fotbolti.net
15.11.26 - 11:51
Brynjar Ingi Erluson

Keppinautur Andra Lucasar fer ekki fet

Will Lankshear er markahæstur með þrettán mörk

Will Lankshear er markahæstur með þrettán mörk

Canon

Mynd: Middlesbrough

Andri Lucas Guðjohnsen hefur farið á kostum með Blackburn Rovers undanfarna mánuði og er orðinn næstmarkahæsti leikmaður ensku B-deildarinnar, en fram undan er hörð barátta við Will Lankshear hjá Middlesbrough um markakóngstitilinn.
Andri Lucas fyrir ofan risanöfn á lista - „Bara gaman af þessu"
TENGT EFNI

Andri Lucas fyrir ofan risanöfn á lista - „Bara gaman af þessu"

Andri er kominn með tíu mörk í ensku B-deildinni á tímabilinu en Lankshear hefur skorað þrettán fyrir Boro og er því þremur mörkum á undan Íslendingnum í baráttunni um markakóngstitilinn.

Íslenski landsliðsmaðurinn fékk ekki sérstaklega góðar fréttir í dag, en samkvæmt TeamTalk ætlar Middlesbrough ekki að hlusta á tilboð í Lankshear í janúar og stefnir því allt í að hann klári tímabilið hjá félaginu.

Þessi 21 árs gamli framherji kom til Boro frá Tottenham fyrir 20 milljónir punda í sumar og hefur farið á kostum síðan. Andri Lucas hefur þó sjálfur verið í frábæru formi og ætlar sér án efa að veita honum harða samkeppni um markakóngstitilinn.

Frammistaða Lankshear hefur ekki farið framhjá félögum í ensku úrvalsdeildinni, frekar en frammistaða Andra. Arsenal og Tottenham hafa fylgst með honum undanfarið, en Lankshear lék með unglingaliðum beggja félaga.

Manchester United, Brighton og Everton eru einnig sögð hafa áhuga á framherjanum, auk Newcastle United, Leeds og Sunderland.

Middlesbrough stefnir hins vegar á að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni og ætlar því ekki að selja Lankshear í janúar, sama hvaða tilboð berast. Félagið mun síðan skoða stöðuna aftur að tímabilinu loknu.

Það stefnir því í áframhaldandi baráttu milli Andra og Lankshear um markakóngstitilinn, nema auðvitað að Andri sjálfur skipti um félag í janúar, en hann hefur einnig verið orðaður við nokkur úrvalsdeildarfélög.

Andri hélt frábæru formi sínu áfram með íslenska landsliðinu á föstudaginn þegar hann skoraði þrennu í 5-0 stórsigri á Búlgaríu. Hann fær svo tækifæri til að kóróna frábæran landsleikjaglugga gegn Lúxemborg á morgun, áður en alvaran tekur aftur við í enska boltanum.
Andri Lucas mun halda áfram að etja kappi við Lankshear um markakóngstitilinn

Andri Lucas mun halda áfram að etja kappi við Lankshear um markakóngstitilinn

Canon

Mynd: Blackburn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.