Alexandre Fernandez Massot hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá knattspyrnudeild Sindra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Hann kemur til Sindra frá KR, þar sem hann hefur meðal annars gegn stöðu aðstoðarþjálfara hjá kvennaliðinu.
Hann verður í fullu starfi hjá Sindra og mun einnig þjálfa yngri flokka.
Sindri féll úr Inkasso deildinni á liðnu sumri en samkvæmt fréttatilkynningunni frá félaginu eru spennandi tímar framundan undir stjórn Massot.
Nánast allar íslensku stelpurnar sem spilað hafa með liðinu hafa staðfest að þær muni spila áfram með Sindra og búið er að semja við flesta lykilleikmenn frá síðustu leiktíð til eins eða tveggja ára.
Athugasemdir