Liverpool gefur áritaðan bolta til styrktar Aroni Sigurvinssyni, aðstoðarþjálfara í Liverpool skólanum á Íslandi sem lenti í alvarlegu bílslysi um síðustu verslunarmannahelgi.
Hæsta boð í boltann er komið yfir hálfa milljón króna og er uppboðið í gangi þar til miðvikudagskvöldið 18. desember, klukkan 21:00.
Rætt var um málið á Síminn Sport fyrr í dag en þar fóru fram tveir leikir í dag, meðal annars 0-3 tap Arsenal gegn Manchester City.
Hér fyrir neðan má sjá Tómas Þór Þórðarson ræða um styrktaruppboðið á léttum nótum.
Viltu eignast bolta sem allt byrjunarlið Liverpool er búið að árita og styðja við frábært málefni í leiðinni? Skoðaðu þá þetta! @Fotboltinet pic.twitter.com/pAV6rZqnjs
— Síminn (@siminn) December 15, 2019
Athugasemdir