Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 15. desember 2021 16:43
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Akureyri.net 
KA verður komið með nýjan heimavöll með gervigrasi eftir þrjú ár
Schiöttararnir, stuðningsmenn KA.
Schiöttararnir, stuðningsmenn KA.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Samkvæmt fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í gær, verður KA komið með nýjan heimavöll með gerivigrasi eftir þrjú ár.

Akureyri.net fjallar um málið en þar kemur fram að 820 millj­ón­um króna verði varið í félagssvæðið á næstu þrem­ur árum.

„Lagður verður nýr gervigrasvöllur og byggð stúka vestan við íþróttahús KA. Það verður keppnisvöllur knattspyrnuliðs félagsins. Þá verður skipt um gervigras á vellinum sunnan við KA-heimilið. Fram kom í máli bæjarfulltrúa í gær að Akureyrarvallarsvæðið við Glerárgötu væri mjög verðmætt byggingarland og mjög gott til þéttingu byggðar. Upplýst var að verðmæti byggingarlandsins væri talið á bilinu 600 milljónir til 1,9 milljarða skv. útreikningum skipulagsstjóra bæjarins," segir í umfjölluninni.

Greifavöllurinn, núverandi heimavöllur KA, er barn síns tíma og slæmt ástand grasvallarins mikið verið í umræðunni. KA mun að öllum líkindum spila fyrstu heimaleiki sína á næsta ári á Dalvíkurvelli, líkt og liðið gerði á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner