Fotbolti.net
16.01.21 - 16:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Fulham og Chelsea: Havertz og Werner byrja ekki

Þjóðverjarnir sem keyptir voru til Chelsea síðasta sumar, þeir byrja ekki í dag.

Þjóðverjarnir sem keyptir voru til Chelsea síðasta sumar, þeir byrja ekki í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er Lundúnaslagur að hefjast klukkan 17:30 í ensku úrvalsdeildinni þegar Fulham tekur á móti Chelsea.
Chelsea er í níunda sæti og Fulham í 18. sæti. Fulham hefur gert hvorki meira né minna en fimm jafntefli í röð og spurning hvort það sjötta komi í kvöld gegn Chelsea sem hefur átt í basli í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu.

Byrjunarliðin eru klár fyrir leikinn. Frank Lampard, stjóri Chelsea, gerir sjö breytingar frá 4-0 sigrinum á Morecambe í FA-bikarnum. Cesar Azpilicueta, Antonio Rudiger, Mason Mount og Hakim Ziyech halda allir sæti sínu. Olivier Giroud, Christian Pulisic og Thiago Silva eru á meðal þeirra sem koma inn.

Timo Werner og Kai Havertz byrja báðir á varamannabekknum hjá Chelsea.

Fulham gerir eina breytingu frá jafnteflinu gegn Tottenham í síðasta leiki. Ruben Loftus-Cheek má ekki spila á móti liðinu sem hann er í láni frá og kemur Ademola Lookman inn fyrir hann.

Byrjunarlið Fulham: Areola, Tete, Aina, Andersen, Adarabioyo, Robinson, Reed, Anguissa, Dercordova-Reid, Lookman, Cavaleiro.
(Varamenn: Rodak, Hector, Odoi, Kebano, Ream, Bryan, Onomah, Kamara)

Byrjunarlið Chelsea: Mendy, Azpilicueta, Thiago Silva, Rudiger, Chilwell, Jorginho, Kovacic, Mount, Ziyech, Pulisic, Giroud.
(Varamenn: Arrizabalaga, Abraham, Werner, Zouma, Hudson-Odoi, Gilmour, James, Havertz, Emerson)

Leikir kvöldsins:
17:30 Fulham - Chelsea
20:00 Leicester - Southampton

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.