Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir 2-0 sigur Leicester gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.
Liðin mættust í síðasta leik dagsins og voru heimamenn betri stærsta hluta leiksins. Þeir verðskulduðu sigurinn og var belgíski miðjumaðurinn Youri Tielemans valinn besti leikmaður vallarins.
Tielemans fær 8 í einkunn hjá Sky, rétt eins og liðsfélagi sinn Marc Albrighton. Wesley Fofana og Jamie Vardy eru einu leikmenn Leicester sem fá undir 7 í einkunn.
Enginn í liði Southampton þótti afgerandi góður eða lélegur í leiknum.
Leicester: Schmeichel (7), Justin (7), Castagne (7), Evans (7), Fofana (6), Ndidi (7), Tielemans (8), Albrighton (8), Maddison (7), Barnes (7), Vardy (6).
Varamaður: Soyuncu (7)
Southampton: McCarthy (7), Walker-Peters (7), Bertrand (6), Stephens (6), Bednarek (7), Diallo (6), Smallbone (6), Ward-Prowse (7), Armstrong (7), Walcott (6), Adams (6).
Varamenn: Long (6), N'Lundulu (6).
Athugasemdir