Helga Guðrún Kristinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, er að ganga til liðs við Trikala í Grikklandi.
Helga er 24 ára gömul og uppalin í Grindavík en hún samdi við Stjörnuna árið 2018. Hún hefur spilað sem vængbakvörður fyrir Stjörnuna og Grindavík en getur einnig leikið stöðu sóknarmanns.
Hún var á láni hjá Grindavík á síðasta tímabili og skoraði 3 mörk í 10 leikjum í Lengjudeildinni.
Helga er nú á leið til Grikklands og mun semja við Trikala í grísku úrvalsdeildinni.
Trikala er í 2. sæti grísku deildarinnar með 18 stig eftir átta leiki, sex stigum frá toppliði PAOK.
Athugasemdir