Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. janúar 2023 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikir: Stjarnan lagði Grindavík en tapaði stórt gegn Þrótti
Izaro skoraði þrennu.
Izaro skoraði þrennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan lék tvo æfingaleiki á laugardag gegn liðum sem verða í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Stjarnan stillti upp svipað sterkum liðum í báðum leikjunum.

Annar leikurinn var gegn Þrótti R. sem endaði í 2. sæti 2. deildar á síðasta tímabili. Sá leikur endaði með 5-0 sigri Þróttar. Izaro hélt upp á nýjan samning og gerði 3 mörk, Guðmundur Axel Hilmarsson og Adrian Valencia gerðu hin tvö.

Hinn leikurinn var gegn Grindavík og vann Stjarnan þann leik 3-0. Guðmundur Kristjánsson skoraði tvö mörk og Haukur Örn Brink (2005) skoraði eitt.

Grindavík hefur styrkt sig í vetur og ætlar sér upp úr Lengjudeildinni í sumar. Stjarnan endaði í 6. sæti Bestu deildarinnar síðasta sumar.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner