Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 16. febrúar 2019 11:48
Elvar Geir Magnússon
KA lánar Frosta í Magna (Staðfest)
Frosti Brynjólfsson.
Frosti Brynjólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magni Grenivík hefur fengið Frosta Brynjólfsson lánaðan frá KA fyrir átökin í sumar.

„Frosti steig sín fyrstu skref á víkinni en flutti ungur til Akureyrar, hann hefur alltaf verið með annan fótinn á Grenó og teljum við okkur eiga aðeins í honum," segir á heimasvæði Magna á Facebook.

Frosti er 18 ára miðjumaður sem lék sex leiki með Magna í 2. deildinni 2016.

Í fyrra kom hann við sögu í fimm leikjum með KA í Pepsi-deildinni og einum í Mjólkurbikarnum.

Magni náði með naumindum að bjarga sér frá falli úr Inkasso-deildinni á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner