Leik Eibar og Real Sociedad sem átti að fara fram í spænsku úrvalsdeildinni í dag var frestað vegna slæmra loftgæða í kringum heimavöll Eibar.
Slys varð á urðunarstað nálægt Eibar þann 6. febrúar síðastliðinn. Tveggja starfsmanna er enn saknað út af slysinu.
Eldar hafa myndast á urðunarstaðnum og hefur það mengað frá sér.
Stjórnvöld í Baskalandi hafa ráðlagt fólki að spila ekki íþróttir utandyra í nálægum bæjum.
Tilkynnt verður um nýjan leikdag fyrir þriðjudag.
Eibar er í 16. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar og Real Sociedad í áttunda sæti. Úrslit dagsins í spænsku úrvalsdeildinni má sjá hérna og hérna.
Athugasemdir