Virgil van Dijk og Joe Gomez hafa verið mjög traustir í vörn Liverpool á þessari leiktíð.
Gomez og Van Dijk hafa spilað saman í hjarta varnarinnar hjá Liverpool frá 14. desember síðastliðnum. Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, byrjaði tímabilið með Joel Matip við hlið Van Dijk, en Gomez hefur núna eignað sér stöðuna.
Tölfræðin þegar Gomez og Van Dijk hafa spilað saman á tímabilinu er mögnuð. Síðan Gomez kom inn í byrjunarliðið þann 14. desember hefur liðið aðeins fengið á sig eitt mark í ensku úrvalsdeldinni.
Það mark kom í 2-1 sigri gegn Úlfunum. Raul Jimenez er eini leikmaðurinn til að skora á Liverpool á síðustu 990 mínútum í ensku úrvalsdeildinni.
Það skemmir ekki fyrir að Liverpool er með Alisson fyrir aftan Gomez og Van Dijk. Alisson hefur verið magnaður frá því að hann gekk í raðir Liverpool frá Roma fyrir síðustu leiktíð.
Liverpool lagði Norwich, 1-0, í gær og er með 25 stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Joe Gomez and Virgil Van Dijk’s record since being restored as a partnership in the PL on December 14.
— Dominic King (@DominicKing_DM) February 16, 2020
0, 0, 0, 0, 0, 0, 1, 0, 0, 0.
Raul Jiminez the only player to score against Liverpool in the last 990 PL minutes ⚽️ 🔴
Athugasemdir