Arnar Már Björgvinsson og Sigurður Bjarni Jónsson hafa gengið til liðs við KFG í 3. deildinni.
Kantmaðurinn Arnar Már kemur til KFG frá Álftanesi en Sigurður Bjarni kemur frá KFB í 4. deildinni.
Kantmaðurinn Arnar Már kemur til KFG frá Álftanesi en Sigurður Bjarni kemur frá KFB í 4. deildinni.
„Arnar Már hefur skorað yfir 20 mörk í Pepsi deild með stjörnunni og eru það mikil gleðitíðindi að fá hann aftur á Samsung völlinn," segir í tilkynningu frá KFG.
„Siggi Baddi kemur aftur í KFG eftir stutta fjarveru, hann hefur áður spilað 25 leiki fyrir KFG og skorað í þeim 9 mörk."
Þeir bætast í hóp við sex leikmönnum sem gengu til liðs við KFG fyrr í vikunni.
Athugasemdir