Fotbolti.net
16.02.21 - 22:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Klopp: Margir að bíða eftir því að sjá okkur tapa aftur

Klopp: Margir að bíða eftir því að sjá okkur tapa aftur
Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Þetta var leikurinn sem við vildum, leikurinn sem við þurftum,"</I> sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 0-2 útisigur gegn RB Leipzig í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
„Leipzig getur verið algjört skrímsli, þeir eru mjög líkamlega sterkir en í kvöld stjórnuðum við þeim á ótrúlegan hátt."

„Við spiluðum mjög góðan leik og fengum úrslitin sem við áttum skilið."

„Þetta var erfiður leikur og aðeins tveir dagar á milli leikja hjá okkur. Þetta er bara fyrri leikurinn - við vitum það - en það var mikið af fólki að bíða eftir því að sjá okkur tapa aftur."

„Við vorum mjög góðir í tvö ár en höfum átt í vandræðum í ár. Það er allt í lagi. Margir voru að búast við því að við myndum klikka aftur í kvöld en strákarnir gerðu það ekki."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.