Man Utd íhugar að gera 40 milljóna punda tilboð í Delap - Liverpool tilbúið að bjóða Nunez upp í Isak - Tottenham horfir til stjóra Bournemouth
   sun 16. febrúar 2025 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Höttur/Huginn sigraði KF í blálokin
Mynd: Höttur/Huginn
KF 1 - 2 Höttur/Huginn
1-0 Agnar Óli Grétarsson
1-1 Þórhallur Ási Aðalsteinsson
1-2 Kristófer Páll Viðarsson

KF og Höttur/Huginn áttust við í spennandi slag í B-deild Lengjubikarsins í dag.

Þetta var eini leikur dagsins í Lengjubikarnum og hafði Höttur/Huginn betur með sigurmarki í blálokin.

Agnar Óli Grétarsson tók forystuna fyrir KF en Þórhallur Ási Aðalsteinsson jafnaði með glæsilegu marki. Þórhallur vann boltann hátt uppi á vellinum og kláraði með frábæru skoti utan teigs svo staðan var jöfn, 1-1, í hálfleik.

Staðan hélst jöfn allt þar til á lokamínútum leiksins, þegar Kristófer Páll Viðarsson skoraði mark úr einfaldri skyndisókn eftir langa sendingu upp völlinn frá Brynjari Þorra Magnússyni.

Lokatölur urðu því 1-2 fyrir Hött/Hugin sem byrjar nýtt tímabil í Lengjubikarnum á sigri. Liðin áttust við í fyrstu umferð mótsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner