Fotbolti.net
16.03.20 - 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Enginn fótbolti og því lýsti Tyldesley eldamennsku

Clive Tyldesley og eiginkona hans.

Clive Tyldesley og eiginkona hans.

Canon

Mynd: Youtube - skjáskot

Clive Tyldesley er einn frægasti fótboltalýsandi heims. Hann var lengi rödd Meistaradeildarinnar hjá ITV í Bretlandi.
Það var enginn fótbolti til að lýsa um helgina út af kórónuveirunni. Þess vegna tók Tyldesley upp á því að nýta hæfileika sína í eldhúsinu.

Hann og eiginkona hans elduðu lasagne og Tyldesley lýsti því eins og um fótboltaleik væri að ræða.

VAR kemur meira að segja við sögu!

„Reynið að halda bros á vör. Við eigum eldri nágranna sem við höfum litið til í dag. Gerið það sama. Verið örugg," segir Tyldesley í lok myndbandsins sem má sjá hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.