Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. mars 2020 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rugani einkennalaus: Búinn með allt á Netflix
Mynd: Getty Images
Daniele Rugani, varnarmaður Juventus, var fyrsti leikmaður Serie A sem greindist með kórónuveiruna.

Hann var greindur í síðustu viku og hefur verið í sóttkví. Honum segist líða nokkuð vel, en hann sé að verða búinn með allt efni á streymisveitunni Netflix.

„Það er í lagi með mig, ég hef verið nokkuð góður," sagði Rugani við Juventus TV. „Ég er ekki með einkennin sem þú lest um í fjölmiðlum."

„Ég þakka öllum fyrir skilaboðin sem ég hef fengið. Það er allt í góðu með mig, þið getið verið róleg. Við munum öll sigrast á þessari stöðu."

Um það hvernig hann hefur verið að eyða tímanum, þá sagði Rugani:„Ég er næstum því búinn með allt á Netflix."
Athugasemdir
banner
banner