Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. mars 2021 16:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hákon Ingi í ÍA (Staðfest)
Hákon Ingi er gulur og glaður.
Hákon Ingi er gulur og glaður.
Mynd: ÍA
ÍA hefur krækt í sóknarmanninn Hákon Inga Jónsson frá Fylki en félagið staðfesti þessi tíðindi rétt í þessu.

Hákon, sem er 25 ára, er uppalinn Fylkismaður en hann hefur skorað 11 mörk í 81 leik í efstu deild á ferlinum.

Í fyrra skoraði hann tvö mörk í 17 leikjum í Pepsi Max-deildinni með Fylki.

Árið 2016 skoraði hann þrettán mörk með HK í næstefstu deild en þjálfari liðsins þá var Jóhannes Karl Guðjónsson, núverandi þjálfari Skagamanna.

ÍA hafnaði í áttunda sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Komnir í ÍA:
Alex Davey frá Tampa Bay Rowdies
Elias Tamburini frá Grindavík
Hákon Ingi Jónsson frá Fylki
Hrafn Hallgrímsson frá ÍR

Farnir
Bjarki Steinn Bjarkason til Venezia
Hlynur Sævar Jónsson í Víking Ó. (Á láni)
Lars Johansson
Marteinn Theodórsson í Víking Ó. (Á láni)
Stefán Teitur Þórðarson til Silkeborg
Athugasemdir
banner
banner