Arnar Grétars: Auðvitað væri betra að vera með alla heila

Arnar Grétarsson þjálfari Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Grétarsson þjálfari Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn tóku á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks þegar síðustu leikir 2.umferðar Bestu deildar karla kláruðust í kvöld. Leikurinn fór fram á Orgio vellinum.
Valsmenn ætluðu sér að ná í sex stiga forskot á Íslandsmeistarana en urðu að lúta í lægra hald með tveimur mörkum gegn engu.
„Mikil vonbrigði með úrslitin en þokkalega ánægður með frammistöðuna. Mér fannst þetta mjög jafn leikur og mér fannst við vera mun sterkari í fyrri hálfleik og mér fannst það ósanngjarnt að fara inn með 1-0 á bakinu." Sagði Arnar Grétarsson þjálfari Valsmanna eftir leikinn.
„Þeir sköpuðu sér nánast ekki neitt og skora uppúr því að við klúðrum hérna stuttu áður og búnir að fá algjöran deddara þegar Tryggvi er við það að sleppa inn. Það hefði verið gaman að fá hann detta hinumeginn en fáum svo mark á okkur í kjölfarið og svo erum við nokkrum sinnum nálægt því."
Valsmenn eru í örlítilli miðvarðarkrísu og vantaði sterka pósta hjá þeim í kvöld.
„Elli, Hólmar og Orri Sig eru allir meiddir og það er ekki kjörstaða en mér fannst Haukur og Hlynur vera hrikalega flottir í dag þannig það var ekkert issiue í þessum leik en auðvitað væri betra að vera með alla heila."
Oliver Stefánsson hefur verið orðaður frá Breiðablik eftir að hafa verið utan hóps í síðustu tveim leikjum hjá Blikum en Arnar Grétars vill ekki meina að Valsmenn muni reyna við hann.
„Nei við erum full mannaðir þarna og við erum ekki að fara sækja einhverja hafsenta núna. Við erum með þrjá hrikalega flotta og þessir tveir hafa staðið sig hrikalega vel sem eru að spila núna."
Nánar er rætt við Arnar Grétarsson þjálfara Valsmanna í spilaranum hér fyrir ofan.

