Sögulegt mark hjá Króatíu og frábært mark tekið af Ronaldo

Frábært mark var tekið af Ronaldo

Mynd: EPA

Frábært mark var tekið af Ronaldo

Mynd: EPA
Króatía er komið í 1-0 forystu gegn Portúgal snemma í síðari hálfleik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Portúgal átti nokkur ágæt færi í fyrri hálfleik en nýtti þau ekki.
Króatía hefur ógnað meira í þeim síðari og Portúgalir verið kærulausir á köflum og boðið hættunni heim.
Hinn 37 ára gamli Ivan Perisic kom Króatíu yfir eftir fyrirgjöf frá Josip Stanisic. Rafael Leao var ekki nægilega vakandi í varnarvinnunni og Stanisic fékk allan þann tíma sem hann þurfti til að koma boltanum fyrir markið. Þar var Perisic aleinn og lagði boltann í netið.
Perisic er þar með orðinn markahæsti leikmaður Króata frá upphafi á HM og hefur slegið met Davor Suker.
Sjáðu markið hjá Perisic
Króatía kom boltanum aftur í netið fyrir skömmu, en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.
Stórkostlegt mark var tekið af Ronaldo. Hann fékk háan bolta inn fyrir, náði fullkominni fyrstu snertingu og setti boltann síðan skemmtilega framhjá Dominik Livakovic í markinu.
Ronaldo var hins vegar dæmdur rangstæður. Hausinn var rétt fyrir innan og það var tæpt, en markið fékk ekki að standa.
Sjáðu markið sem var tekið af Ronaldo