16.05.13 - 09:00
Magnús Már Einarsson
Haukur Hinriksson í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Þróttur hefur fengið varnarmanninn Hauk Hinriksson til liðs við sig en hann yfirgaf herbúðir KA á dögunum.
Haukur hefur skorað þrjú mörk í 52 leikjum með meistaraflokki KA á ferli sínum.
Sumarið 2011 var Haukur í láni hjá Völsungi þar sem hann var valinn leikmaður tímabilsins.
Í fyrra var Haukur fastamaður í liði KA en hann lék alla leiki liðsins í fyrstu deildinni.
Haukur gæti leikið sinn fyrsta leik með Þrótti þegar liðið heimsækir BÍ/Bolungarvík á laugardag.
Annar varnarmaður, Helgi Pétur Magnússon, hefur aftur á móti yfirgefið herbúðir Þróttara og gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Skallagrím í 4. deildinni.