Fotbolti.net
16.05.13 - 10:51
Elvar Geir Magnússon

KA lánar tvo menn í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Gunnar Már Magnússon.

Gunnar Már Magnússon.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Dalvík/Reynir, sem vann Reyni Sandgerði í fyrstu umferð 2. deildar, bætti við sig tveimur leikmönnum í gær. Koma þeir báðir frá KA á láni.

Gunnar Már Magnússon og Steinþór Már Auðunsson heita leikmennirnir en báðir hafa þeir áður leikið með Dalvík/Reyni.
Gunnar Már er uppalinn Dalvíkingur og er til að mynda leikjahæsti og markahæsti leikmaður í stuttri sögu Dalvíkur/Reynis eða frá árinu 2006.

Steinþór Már var í bekknum í liði ársins í fyrra í 2. deildinni með Dalvík/Reyni. Hann kom fyrst til Dalvíkur/Reynis um mitt sumar 2011 en samdi við uppeldisfélag sitt KA í vetur.

Þeir Gunnar og Steinþór eru komnir með leikheimild og geta leikið útileik gegn Njarðvík næsta laugardag.
Markvörðurinn Steinþór Már.

Markvörðurinn Steinþór Már.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.