Fotbolti.net
16.05.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Tveir erlendir leikmenn í HK/Víking (Staðfest)

Tveir erlendir leikmenn í HK/Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Slava Titov

Kvennaboltinn
HK/Víkingur tilkynnti á vef sínum í gær að félagið hafi fengið til liðs við sig tvo erlenda leikmenn fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna í sumar.
Þetta eru bandaríska knattspyrnukonan Rachel Wood og jamaíski markvörðurinn Nicole McClure eru komnar í raðir liðsins og eru komnar með leikheimild.

Rachel Wood er reyndar ekki væntanleg fyrr en eftir mánaðamótin en hún hefur leikið undanfarin þrjú ár í 1. deild bandaríska háskólaboltans og áður með U17 og U20 ára landsliðum Bandaríkjanna. Hún er 22 ára og leikur ýmist sem framherji eða miðvörður.

Nicole McClure hefur árs reynslu af Pepsi-deildinni því hún varði mark Selfyssinga á síðasta tímabili. Hún er 24 ára gömul og spilaði þá 16 af 18 leikjum liðsins í deildinni. Í vetur spilaði hún með svissnesku liði.

Heimild: Vefur HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.