Portsmouth 0 - 0 Sunderland (0 - 1)
Sunderland mun spila í úrslitum umspilsins í ensku C-deildinni eftir markalaust jafntefli gegn Portsmouth í kvöld.
Fyrri leikurinn, sem var á Leikvangi ljósanna, heimavelli Sunderland, endaði með 1-0 sigri Sunderland.
Svo fór að það var ekkert skorað á Fratton Park í kvöld. Portsmouth átti fleiri marktilraunir en engin þeirra rataði í markið. Lokatölur því 0-0 í þessum leik.
Sunderland á því möguleika á að fara beint aftur upp í Championship-deildina. Liðið mun annað hvort mæta Charlton eða Doncaster í úrslitunum. Portsmouth verður áfram í C-deild.
Luton og Barnsley eru nú þegar komin upp í Championship-deildina.
Athugasemdir