Fotbolti.net
16.06.22 - 23:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sonur Rooney að skila rosalegum tölum

Kai skrifar undir samninginn.

Kai skrifar undir samninginn.

Canon

Mynd: Wayne Rooney - Facebook

Það er stundum sagt að eplið falli ekki langt frá eikinni. Í tilfelli Kai Rooney er það mögulega rétt.
Kai er elsti sonur Wayne Rooney, sem er markahæsti leikmaðurinn í sögu Manchester United og enska landsliðsins.

Kai, sem verður 13 ára á árinu, skrifaði undir samning við Man Utd í desember 2020 og er að spila í akademíu félagsins. Hann fór svo sannarlega á kostum á tímabilinu 2021/22.

Það er sagt frá því á samfélagsmiðlinum að hann hafi skorað 56 mörk og lagt upp 28 til viðbótar í akademíunni á tímabilinu. Þar á meðal skoraði hann fjögur mörk í U12 leik gegn Liverpool.

Kai á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og verður gaman að sjá hversu langt hann mun fara.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.