16.07.16 - 16:50
Þorsteinn Haukur Harðarson
Luka Kostic: Hægir frá upphafi til enda
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
<i>\"Það er fátt hægt að segja eftir svona leik. Þeir voru bara betra liðið í dag, og ætluðu sér að ná í þessu þrjú stig.\"</i> sagði Luka Kostic, þjálfari Hauka, eftir 3-0 tap á heimavelli gegn Fjarðabyggð í dag,
\"Við vorum hægir frá upphafi til enda og baráttan sem einkennir okkur var ekki til staðar. Þá er ekki hægt að segja annað en að úrslitin séu sanngjörn.\"
\"Fótboltinn er bara svona. Stundum hitta menn ekki á góðan dag og þá skiptir ekki öllu máli hvort liðið sé í toppnum. En það væri ekkert gaman ef maður vissi fyrirfram hvernig leikir myndu spilast.\"
Næst var han spurður hvort han gæti tekið eitthvað jákvætt út út leiknum. \"Leyfðu mér að hugsa það aðeins lengur,\" sagði Luka léttur áður en hann bætti við.
\"Það er ekki langt í næsta leik svo við getum farið að einbeita okkur að honum. Við reyndum bara að gleyma þessum leik.\".
Þá ætla Haukar að styrkja sig. \"Við erum að reyna það. Við erum að fá einn og svo sjáum við til hvort það komi fleiri. Það kemur í ljós fljótlega.\"