Fotbolti.net
16.07.20 - 21:53
Sverrir Örn Einarsson

Unnar: Besti leikurinn okkar í sumar

Auglýsing
Unnar Þór Garðarson

Unnar Þór Garðarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Úrslitin endurspegla engan veginn gang leiksins myndi ég segja. Við spiluðum virkilega góðan leik, kannski hálfskrýtið að segja það hérna að þetta hafi verið besti leikurinn okkar í sumar.“
Sagði Unnar Þór Garðarson annar þjálfara ÍA við fréttaritara Fótbolta.net eftir 1-3 tap ÍA gegn Keflavík í kvöld.
Það má alveg færa rök fyrir því að úrslit leiksins séu ekki í takti við gang hans en sem dæmi fékk ÍA 14 hornspyrnur í leiknum gegn 3 Keflavíkur. Um þetta sagði Unnar.

„Ótrúlegur fjöldi af hornum sem við náum ekki að nýta okkur en það er bara áfram gakk í því og við auðvitað vinnum í því sem við þurfum að gera. Það er stutt í næsta leik og við verðum bara að taka þetta með okkur og fara í þann leik á fullu eins og við gerðum í kvöld.“

Tapið í kvöld var það fyrsta hjá ÍA í deildinni en fimm lið voru taplaus í deildinni fyrir þessa umferð. Er það ekki bara nokkuð gott?

„Það er rétt þetta er fyrsta tapið okkar og ótrúlega svekkjandi að það komi í besta leiknum í sumar en við tökum ekkert frá Keflavík með það. Þær nýttu færin sem þær fengu og við fáum þessi þrjú mörk á okkur en ótrúlega stoltur af stelpunum þær stóðu sig virkilega vel í þessum leik.“

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.