banner
   fim 16. júlí 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Zidane brjálaður á spurningum um Bale
Bale á bekknum á dögunum.
Bale á bekknum á dögunum.
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid brást illa við því á fréttamannafundi í gær þegar hann var spurður út í Gareth Bale.

Bale hefur verið ónotaður varamaður í síðustu fimm leikjum og vakið athygli á varamannabekknum fyrir að þykjast sofa og hafa lítinn áhuga á leiknum sem er í gangi.

Samband Bale og Zidane hefur ekki verið gott en sá síðarnefndi vill meina að fjölmiðlar séu að reyna að gera illt verra.

„Guð minn góður, þvílík spurning maður! Við hugsum um leikinn á morgun og það sama á við um Gareth. Hann er einn af okkur. Þið reynið að búa til vesen á milli okkar en þið getið það ekki," sagði Zidane.

„Þið spyrjið að því sama alla daga. Þið hafið rétt til að spyrja en hér eru allir samheldnir. Við hugsum allir á sama hátt. Gareth, James (Rodriguez) og allir hér. Við viljum allir það sama."
Athugasemdir
banner
banner
banner